Geislavarnir á rannsóknastofum
Námskeiðið er ætlað fólki sem vinnur á rannsóknarstofum þar sem geislavirk efni eru meðhöndluð. Þetta er yfirlitsnámskeið þar sem fjallað er um mismunandi uppsprettur geislunar, grundvallarreglur geislavarna, ábyrgð, vinnubrögð og fleira.
Námskeiðið er einnig gagnlegt fyrir aðra, t.d. notendur röntgentækja til efnagreiningar (XRF) og geislavirkra efna (starfsemi í flokki C, geislalindir í hættuflokki 4-5).